Skipulagsbreytingar hjá Eimskip


Á undanförnum misserum hafa átt sér stað breytingar í rekstrarumhverfi Eimskips sem kalla á aukna hagræðingu og skilvirkni í rekstri. Í því ljósi hefur verið ákveðið að gera breytingar á stjórnskipulagi félagsins.   

Helstu breytingar eru þær að Hilmar Pétur Valgarðsson fjármálstjóri Eimskips mun taka við nýju sviði, Rekstrarsviði, sem sameinar helstu rekstrareiningar félagsins tengdum skiparekstri og siglingakerfi. Egill Örn Petersen forstöðumaður á fjárhagssviði mun taka við starfi fjármálastjóra og leiða fjármálasvið félagsins. Ný deild, Ferla- og upplýsingatæknideild, sem áður voru tvær aðskildar deildir í skipuriti mun heyra beint undir forstjóra.

Samhliða þessum skipulagsbreytingum verður hagrætt í siglingakerfi félagsins. Strandsiglingar verða nú aðra hverja viku í stað vikulega frá Íslandi, eins og áður hefur verið tilkynnt, auk þess sem fækkað hefur verið um eitt skip í siglingakerfi félagsins í Noregi.

Aukið verður við þjónustu við ferskfisk- og uppsjávarviðskiptavini í Færeyjum með vikulegum siglingum frysti- og gámaskipsins Svartfoss milli Færeyja og Bretlands auk þess sem aðra hverja viku verða siglingar milli Færeyja og Hollands.

Þessar  aðgerðir fela í sér breytingar á 10 stöðugildum hjá félaginu þar sem þau ýmist verða lögð niður eða taka breytingum. Flest þessara stöðugilda varða millistjórnendur hjá félaginu.

Laun nýs forstjóra taka mið af þeirri áherslu stjórnar að lækka þurfi kostnað félagsins.

Nánar um nýtt stjórnskipulag félagsins:

Rekstrarsvið er nýtt svið sem Hilmar Pétur Valgarðsson, núverandi framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, mun stýra. Ábyrgð sviðsins nær yfir rekstrareiningar sem hafa til þessa verið undir fjármála- og rekstrarsviði annars vegar og flutningasviði hins vegar. Með þessari breytingu er allur rekstrarkostnaður skipa og flutningakerfa sameinaður á einu sviði með það að markmiði að ná fram aukinni hagkvæmni í rekstri.

Undir sviðið munu heyra skiparekstur, siglingakerfi, gámastýring, innkaupa- og kostnaðareftirlit, tjóna og tryggingarmál ásamt öryggis- og forvarnarmálum.

Fjármálasvið sem áður hét fjármála- og rekstrarsvið ber ábyrgð á fjármálum Eimskips samstæðunnar á alþjóðavísu. Egill Örn Petersen sem starfað hefur sem forstöðumaður fjárhagsdeildar tekur við starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs.

Egill hóf störf hjá Eimskip árið 2003, fyrst sem sérfræðingur í hagdeild og síðar sem deildarstjóri sömu deildar. Hann tók við starfi forstöðumanns fjárhagsdeildar árið 2009. Egill lauk B.Sc. gráðu í viðskiptafræði árið 2002 frá Háskóla Íslands.

Sölu- og markaðssvið sem áður hét flutningasvið, sem Matthías Matthíasson stýrir, mun sem áður leggja áherslu á sölu og framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina í áætlunarkerfi félagsins. Að auki mun markaðsdeild Eimskips færast undir sviðið.

Innanlandssvið sem Guðmundur Nikulásson stýrir, mun sem áður bera ábyrgð á rekstri landflutninga, vöruhúsa og hafnarþjónustu félagsins á Íslandi.

Alþjóðasvið sem Bragi Þór Marinósson stýrir, mun sem áður bera ábyrgð á rekstri félagsins erlendis að undanskildum skiparekstri.

Mannauðssvið sem áður hét mannauðs- og markaðssvið, sem Elín Hjálmsdóttir stýrir, ber ábyrgð á stefnum, framkvæmd og samræmingu í mannauðsmálum og samfélagslegri ábyrgð hjá Eimskip á alþjóðavísu. Elín Hjálmsdóttir framkvæmdastjóri sviðsins mun jafnframt taka að sér hlutverk upplýsingafulltrúa félagsins.

Ferla- og upplýsingatæknideild  sem áður voru tvær aðskildar deildir í skipuriti verður stýrt af Hilmari Karlssyni forstöðumanni en deildin heyrir nú beint undir forstjóra.

Viðhengi


Attachments

Eimskip_Organizational chart