Reginn hf.: Birting uppgjörs þriðja ársfjórðungs 2018



Reginn mun birta samþykkt uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung ársins 2018, eftir lokun markaða þriðjudaginn 6. nóvember 2018.

Af því tilefni býður Reginn hf. til opins kynningarfundar miðvikudaginn 7. nóvember nk. kl. 8:30 á skrifstofu Regins í Smáralind, Hagasmára 1, 1. hæð, Kópavogi.

Gengið er inn í skrifstofur Regins beint frá bílastæðahúsi við Norðurturninn.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

https://livestream.com/accounts/11153656/events/8433395/player


Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins kynnir uppgjörið og svarar spurningum að lokinni kynningu. 

Boðið verður upp á morgunverð.

Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is


Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262